ALÞJÓÐLEG DREIFING Á TÍSKUVÖRUM Á GÓÐU VERÐI Í MEIRA EN 30 ÁR.
Tíska hefur verið ástríða okkar hjá Remys í meira en 30 ár. Höfuðstöðvar okkar eru í London og við
störfum náið með nokkrum lykilhönnuðum við að skapa smekklegan hágæða tískufatnað sem er
innblásinn af nýjustu tískustraumum og tískulitum.
Auk okkar eigin vörumerkja, erum við með skrifstofur í austurlöndum fjær sem gera okkur kleift að
hanna og framleiða tískuvörur á góðu verði fyrir pantanir samkvæmt samningum, í samræmi við
sérþarfir hvers viðskiptavinar.
Rétta úrvalið – 300 nýjar vörur til að velja úr í hverjum ársfjórðungi.
Rétta verðið – reynsla okkar á markaðnum hefur gert okkur kleift að halda lágu verði ár eftir ár um
allan heim.
Rétta hönnunin – Topptískumerki – öll með meira en 10 ára reynslu á markaðnum
DIVA LA REINE APOLLO GLAMOUR GIRL WOODLAND GIANNI VITTORRIO IRENA GYM
Á heimasíðum okkar, sem eru á mörgum tungumálum, er að finna fleiri vörur og
nauðsynlegar upplýsingar fyrir viðskiptavini.
www.remysuk.com – fyrir vörur sem við eigum á lager og sértilboð á nýjustu vörunum
www.remys.co.uk – fyrir nýjustu vörur / væntanlegar vörur
www.sensei-uk.com fyrir handtöskur og aukahluti
Hægt er að sjá allar vörurnar í verslunum okkar í London eða á einhverjum af þeim
alþjóðlegu tískussýningum sem nefndar eru.
Þessi vefsíða hefur að geyma allar upplýsingar sem þú þarft til að fá send tískuföt á frábæru verði.
1. Öllum spurningum svarað – Algengar spurningar
2. Hafðu samband til að fá senda alla vörulistana og bæklingana með nýju fatalínunni frá okkur.
3. Nákvæmar upplýsingar um flíkurnar – vinsamlegast fylltu út fyrirspurna-eyðublaðið og taktu
fram númer flíkanna. Við munum þá senda þér tölvupóst með öllum upplýsingum um liti / stærðir
og efni.
4. Þú pantar í gegnum netið með því einfaldlega að fylla út pöntunareyðublaðið. Við munum þá
senda þér tölvupóst með staðfestingu á pöntuninni og láta þig vita hvort varan er fáanleg í
augnablikinu.
Allar vörurnar eru fáanlegar í forpökkuðum kössum með úrvali af mismunandi stærðum og
tískulitum. Meðalfjöldi flíka í kassa er 48 stykki.
Þú getur valið að kaupa pakka af hálfum kössum með alveg niður í 12 flíkur.
Þú getur greitt með evrum (€), sterlingspundum (£) eða bandaríkjadölum ($) og verðið sem gefið er
upp er fyrir eitt eintak af vöru og flutningskostnaður er ekki innifalinn í því. Hægt er að fá niðurfellingu
á flutningskostnaði fyrir pantanir á meira en 20 kössum til allra helstu áfangastaða í Evrópu, og er
háð skilmálum.
SÝNISHORN
Ef þú kemst ekki á alþjóðlegu vörusýningarnar okkar eða í verslanir okkar, getum við sent þér
sýnishorn
Vinsamlega fylltu út fyrirspurnar-eyðublaðið og teldu upp númerin á þeim vörum sem þú vilt fá
sýnishorn af. Fyrir sýnishornin rukkum við kostnað + flutningskostnað og lágmarksgjaldið er £
70/ € 110,00.
Greiða þarf fyrir sýnishornin áður en þau eru send, annað hvort með kreditkorti eða
bankamillifærslu.